Hvað er málþroskaröskun DLD?
Fimm atriði sem þú þarft að vita um málþroskaröskun DLD (e. Developmental Language Disorder)
- Málþroskaröskun DLD er dulin skerðing. Fólk með þessa röskun gerir fleiri villur í máli, notar einfaldari setningar eða á jafnvel erfitt með að skipuleggja samræður. Þessir erfiðleikar eru ekki alltaf augljósir þeim sem ekki hafa sérhæft sig á þessu sviði.
- Málþroskaröskun DLD kemur snemma fram hjá börnum og viðhelst fram á fullorðinsár.
- Málþroskaröskun DLD kemur fram hjá fólki um allan heim, óháð því hvaða tungumál það talar.
- Málþroskaröskun DLD er algeng. Fram hefur komið í rannsóknum að eitt af hverjum 14 börnum glími við
einkenni DLD.
- Málþroskaröskun DLD þarfnast athygli. Hún getur haft áhrif á félagslega og tilfinningalega velferð
einstaklingsins og hvernig honum vegnar í lífinu, jafnt í skóla sem vinnu.
Viltu vita meira um DLD?